Um

Kennari

Kennari í meðgöngujóga er Helena Herborg Guðmundsdóttir. Helena lauk kennaranámi í Kundalini jóga árið 2017. Lokaverkefni hennar var m.a. sérnámskeið í meðgöngujóga. Hún lærði meðgöngujóga hjá Auði Bjarnadóttur og fór í kennaranám í “the Khalsa Way” hjá Gurmukh Kaur Khalsa. Hún hefur auk þess lokið framhaldsnámi í jóga nidra hjá Kamini Desai, hjá I am Yoga Nidra og Jógasetrinu árið 2021. Jóga nidra er djúpslökun eða jógískur svefn og hefur Helena bætt því við meðgöngujógatímana. Hún hefur einnig lokið kennaranámi í krakkajóga auk Vinyasa jóga árið 2022.

Helena kynntist sjálf meðgöngujóga á sinni annarri meðgöngu árið 2007. Það var markmið hennar að finna leiðir til að meðganga og fæðing myndi ganga betur en þegar hún átti sitt fyrsta barn. Hún var sjálf með grindarverki á meðgöngu og fékk að kynnast hversu jákvæð áhrif jóga hefur bæði á meðgöngu og fæðingu. Helena er þriggja barna móðir og hennar ástríða er að kenna meðgöngujóga og miðla af þekkingu sinni til að hjálpa fleiri konum að upplifa dásamlega jógafæðingu.